VÖLVUSVÖRLAUFEY SPÁMIÐILL

INNSÆI · NÆRVERA · FRAMTÍÐARSÝN

Hið ósagða.
Hið ókomna.
Þín saga.

Sumar spurningar ber maður með sér lengi.
Hér máttu leggja þær fram.

Ég er Laufey, spámiðill og völva. Ég býð þér persónulega framtíðarsýn og miðlun, skrifaða af hlýju, næmni og hreinskilni.

Yfir 27 ára reynsla · Persónuleg, skrifleg miðlun
Myndræn sýn við túrkísblátt fjallavatn í sólarljósi
ÞAR SEM HIÐ SÝNILEGAmætir hinu hulda
Skrifað sérstaklega fyrir þigAfhent í tölvupóstiVirðing og trúnaður

PERSÓNULEG MIÐLUN

Hvað liggur þér
á hjarta?

Framtíðin, tengslin eða það sem er ósagt.
Veldu þá leið sem hentar þér núna.

FLEIRI LEIÐIR TIL INNSÝNAR

Sálarferðir og svör.

Stutt spá eða dýpri könnun á því
sem þú berð með þér.

LÚXUS PAKKINN

Fyrir þig
sem vilt allt.

Fjórar persónulegar leiðir til að kynnast sjálfri þér, stöðunni þinni og því sem er fram undan.

29.900 kr.

Samtals keypt sér: 38.600 kr.
Þú sparar 8.700 kr.

  1. 01

    Djúp Örlagaspá

    Um 2.000 orð um alla helstu lífsþætti.

  2. 02

    Árumynd og árulestur

    Persónuleg mynd og árulestur út frá ljósmynd þinni.

  3. 03

    Talnaspeki

    Tölurnar þínar og kraftur þeirra.

  4. 04

    Rúnin þín

    Fæðingarrúnin þín og þýðing hennar.

LAUFEY SPÁMIÐILL

Næmni.
Reynsla.
Hreinskilni.

Laufey

Ég hef starfað sem spámiðill og völva í yfir 27 ár. Fyrir mér byrjar hver miðlun á manneskjunni sem leitar til mín.

Sumir koma með skýra spurningu. Aðrir hafa aðeins tilfinningu fyrir því að eitthvað sé að breytast. Þú þarft ekki að kunna að orða allt áður en þú hefur samband.

Ég vinn með innsæi, tarot, rúnir og opna miðlun. Ég nálgast hverja manneskju af virðingu og trúnaði og legg mig fram um að færa skilaboðin í orð sem þú getur tekið með þér.

Þú færð miðlunina skriflega og getur snúið aftur að henni í ró og næði.

Segðu mér hvað liggur þér á hjarta

LÍTIL STUND FYRIR ÞIG

Hvað talar til þín í dag?

Kyrraðu hugann og gefðu innsæinu pláss.

Flautuleikari undir bláum stjörnuhimni við hlýjan eld

Rún dagsins

Dragðu eina rún úr eldra Fúþarki.

Tarotstund

Dragðu eitt spil og íhugaðu skilaboðin.

ÞÍN STUND

Hvar byrjar
þín saga?

Veldu þjónustu og skrifaðu mér. Ég svara með greiðsluupplýsingum og næstu skrefum.

Miðlunin berst í tölvupósti. Afhending er almennt innan 1–5 daga.

volvusvor@gmail.com

Allar fyrirspurnir eru meðhöndlaðar af trúnaði.

Tölvupóstforritið þitt opnast með upplýsingunum. Þú sendir póstinn sjálf. Ekkert er sent með því einu að fylla út formið.

GOTT AÐ VITA

Spurningar og svör.

Hvernig fer pöntunin fram?

Þú velur þjónustu og sendir mér tölvupóst með fullu nafni, fæðingardegi og fæðingarári. Ég svara með greiðsluupplýsingum. Eftir greiðslu sendir þú mér kvittun.

Þarf ég að koma með spurningar?

Nei. Þú mátt nefna það sem liggur þér á hjarta eða velja opna miðlun og leyfa því að koma fram sem kallar eftir athygli. Örspá hentar vel fyrir eina afmarkaða spurningu.

Hvernig fæ ég miðlunina?

Þú færð hana skriflega í tölvupósti. Örlagaspá er sett upp í PDF-skjal sem þú getur vistað og tekið fram aftur.

Hvað þarf fyrir árulestur og árumynd?

Sendu mér ljósmynd af þér með pöntuninni í tölvupósti. Myndinni er ekki hlaðið inn á þessa síðu.